Norðurlandaráð græðara
Nordisk Samarbejds Komité for ikke-konvensjonel medisin/terapi (NSK) var stofnað í mars 2000 og gengu Íslendingar í samtökin á þeim stofn-fundi. Félag íslenskra nuddara var í forsvari og sóttu þennan fyrsta fund Ástríður Svava Magnúsdóttir og Guðmundur Skúli Stefánsson, bæði frá Félagi íslenskra nuddara. Stofnfundurinn var haldinn í Danmörku og var Íslendingum fengið það verkefni að koma á fót félagasamtökum fyrir allar óhefðbundnar meðferðir á Íslandi sem uppfylltu tilskildar menntunarkröfur.
Fyrsti samnorræni aðalfundurinn
Ísland fékk það verkefni að halda fyrsta aðalfund hinna norrænu samtaka, NSK, og var hann haldinn hér dagana 14.-15. október 2000. Ísland fékk einnig það verkefni að koma með tillögu um merki fyrir NSK og var tillagan samþykkt einróma á fundinum. Fundarmenn voru sammála um að fundurinn hefði verið til fyrirmyndar og að hann lofaði góðu um framhaldið.
Í tengslum við fyrsta aðalfund NSK var haldin einstaklega glæsileg og vel heppnuð ráðstefna sem samanstóð af vöru- og þjónustusýningu ásamt fjölda fyrirlestra, ráðstefnan var haldin í Heilbrigðisskólanum í Reykjavík, Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Í tengslum við fyrsta aðalfund NSK var haldin einstaklega glæsileg og vel heppnuð ráðstefna sem samanstóð af vöru- og þjónustusýningu ásamt fjölda fyrirlestra, ráðstefnan var haldin í Heilbrigðisskólanum í Reykjavík, Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Fulltrúar Íslands í NSK:
- 2018-2019, Guðrún Ólafsdóttir, aðalfulltrúi og formaður NSK
- 2017-2018, Guðrún Ólafsdóttir, aðalfulltrúi og formaður NSK
- 2016-2017, Guðrún Ólafsdóttir, aðalfulltrúi og formaður NSK
- 2015-2016, Guðrún Ólafsdóttir, aðalfulltrúi og formaður NSK.
- 2014-2015, Guðrún Ólafsdóttir, aðalfulltrúi í NSK
- 2013-2014, Guðrún Ólafsdóttir, aðalfulltrúi Í NSK.
- 213-2014, Guðrún Ólafsdóttir aðalfulltrúi í NSK.
- 2012-2013, Guðrún Ólafsdóttir, aðalfulltrúi NSK og Anne May Sæmndsdóttir, varafulltrúi.
- 2010-2012, Anne May Sæmudsdóttir aðalfulltrúi NSK.
- 2007-2010, Sigrún Sigurðardóttir aðalfulltrúi NSK og Soffía Lára Karlsdóttir, varafulltrúi.
- 2006-2007, Anna Birna Ragnarsdóttir aðalfulltrúi NSK og Anne May Sæmundsdóttir, varafulltrúi.
- 2005-2006, Anne May Sæmundsdóttir aðalfulltrúi NSK og Sigrún Sigurðardóttir varafulltrúi.
- 2003-2005, Anne May Sæmundsdóttir aðalfulltrúi NSK og Hallfríður María Pálsdóttir, varafulltrúi.
- 2000-2003, Ástríður Svava Magnúsdóttir, Anne May Sæmundsdóttir, Birna Imsland og Guðmundur Skúli Stefánsson.